Gjaldskrár ósjúkratryggðra

Gjaldskrár Landspítala byggja á reglugerðum sem eru gefnar út af velferðarráðuneyti. Hér færðu yfirlit um almenna greiðsluþátttöku sjúklinga og upplýsingar um greiðslur fyrir einstök læknisverk eða þjónustu.

Sjá einnig gjaldskrá sjúkratryggðra.

Gildir frá 01.01.2024

Yfirlit um gjaldskrár

Brjóstamiðstöð – Skimun og greining
DRG
Göngudeildir
Kvennadeildir
Rannsóknir
Röntgen (myndgreining)
Sjúkrahótel
Slysa- og bráðamóttökur
Vottorð

Innheimta og reglur

Þeir sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi, þar á meðal einstaklingar sem ekki hafa átt lögheimili á Íslandi sl. 6 mánuði, þurfa sjálfir að ábyrgjast greiðslu fyrir læknisþjónustu hér á landi, samkvæmt gildandi reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og greiðslur þeirra fyrir heilbrigðisþjónustuna. Fyrirspurnum er svarað á netfanginu: insurance@landspitali.is

Patients Without Icelandic Health Insurance
- Where to turn in case of an accident or illness

Sjúkratryggðir greiða að hámarki kr. 31.150 kr. á mánuði fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Hámarksgreiðsla í mánuði fer eftir greiðslumarki einstaklings, sem sótt er í réttindagátt viðkomandi hjá Sjúkratryggingum Íslands, www.sjukra.is.   Þar má einnig finna ítarlegri gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu.