Fósturgreiningardeild
Velkomin á heimasíðu fósturgreiningardeildar

Fósturgreiningardeild er á 1. hæð í B-álmu kvennasviðs.
Inngangur er til hægri við aðalinngang kvennadeildahúss.
Deildin er opin alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00.
Athugið að deildin er lokuð kl. 12:00 - 13:00.
Tímabókanir eru frá kl. 08:00 - 12:00 og kl. 13:00 - 16:00.
Sími: 543 3256
Verðandi foreldrar vinsamlega athugið eftirfarandi:
- Að koma ekki með börn í ómskoðunina. Börn eiga erfitt með að tengja ómmyndina við barn og verða því oft hávær og óróleg. Það getur truflað einbeitingu ómskoðarans og foreldranna sem njóta hennar þá ekki sem skyldi. Ef eitthvað afbrigðilegt finnst við skoðun á fóstrinu er viðvera barns ekki heppileg.
- Aðeins einn aðstandandi sé viðstaddur ómskoðunina.
- Hægt er að kaupa myndir af fóstrinu en ekki myndbandsupptöku.
- Vinsamlega hafið slökkt á farsímum og myndatökur eru ekki leyfðar á deildinni.
- Beiðni um ómskoðun þarf til að fá skoðun og fæst hún hjá ljósmóður/lækni í heilsugæslunni.
Á fósturgreiningardeild eru gerðar fósturskoðanir á meðgöngu, svo sem staðfesting þungunar, 11-14 vikna fósturskimun, 19-20 vikna fósturskimun, vaxtarmælingar, flæðismælingar, tekin legvatnssýni og fylgjuvefssýni.
- 6-12 vikna - Snemmómun
- 11-14 vikna fósturskimun
- 19 - 20 vikna fósturskimun
- Vöxtur og flæðimælingar
- Ómun í tvíburameðgöngu
- Erfðaráðgjöf
- Spurningar og svör/ómskoðun
- Þrívíddarómun
- Starfsmenn
- Litningarannsóknir
Deildarstjóri: Margrét Hallgrímsson margriha@landspitali.is
Yfirlæknir: Hildur Harðardóttir hhard@landspitali.is
Síðast breytt: 18.02.2011 15:42