Við andlát
Starfsfólk Landspítala leggur sig fram um að auðsýna bæði látnum og lifandi virðingu. Búið er um hinn látna af nærfærni og aðstandendum gefinn kostur á því að eiga nauðsynlega kveðjustund við dánarbeð. Sjúkrahúsprestar/djákni Landspítala eru reiðubúin að liðsinna aðstandendum eftir því sem óskað er, leiða kveðjustund og veita nauðsynlegar upplýsingar um framvindu mála eða kalla til viðkomandi sóknarprest sé þess óskað.
Andlát á sér ýmist nokkurn aðdraganda eða það kemur fyrirvaralaust. Hvort heldur er um að ræða þá eru fæstir undir það búnir og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Landspítali hefur látið gera bækling til að afhenda aðstandendum við andlát, þar má finna hagnýtar upplýsingar s.s. símanúmer þjónustuaðila útfara o.fl.
Dánarvottorð þarf að liggja fyrir áður en kemur til útfarar og afhendingarstaður þess er skráður í fyrrnefndan bækling. Dánarvottorðið er afhent sýslumanni þar sem hinn látni átti lögheimili. Hjá sýslumanni er síðan útgefið staðfestingarvottorð sem prestur, eða annar sá aðili sem annast útförina, fær í hendur áður en útför er gerð. Séu áhöld um dánarorsök getur læknir óskað eftir leyfi til krufningar, eins er aðstandendum heimilt að óska eftir krufningu sé einhver vafi í huga þeirra hvað þetta varðar. Réttarkrufning er framkvæmd ef andlát ber að höndum skyndilega án þekktrar sjúkrasögu eða með voveiflegum hætti. Vakni frekari spurningar í þessu sambandi er starfsfólk Landspítala ávallt reiðubúið til leiðsagnar.
Hvað úrvinnslu sorgarinnar áhrærir og veginn til huggunar eru djákni og prestar Landspítala fús til að beina aðstandendum á þá leið sem æskilegt og/eða nauðsynlegt er að fara, benda á aðra hjálparaðila, hagnýtt lesefni o.fl. Gangi ykkur vel!
Sálgæsla presta og djákna