Sálgæsla presta og djákna
Við starfseiningu sálgæslu presta og djákna á Landspítala eru eftirfarandi starfsmenn: Sr. Sigfinnur Þorleifsson, Vigfús Bjarni Albertsson, sr. Bragi Skúlason, sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sr. Ingileif Malmberg, sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahúsprestur þjóðkirkjunnar og Rósa Kristjánsdóttir djákni.
Sjúkrahúsprestar/djákni skipta með sér verkum og ganga vaktir þannig að hægt er að ná í sjúkrahúsprest/djákna á hvaða tíma sólarhringsins sem er allt árið um kring.
Sjúkrahúsprestarnir og djákninn skipta með sér verkefnum deildanna á dagvinnutíma og sinna hver sínum deildum. Sinnt er andlegri og trúarlegri þjónustu við sjúklinga, aðstandendur þeirra og starfsfólk. Sálgæsluvinnu ber þar hæst, auk helgihalds, bænastunda, fræðslu og stuðningsviðtala við sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk.
Ef þarf að hafa samband við prest/djákna ber að snúa sér til hjúkrunarfræðings á deildinni sem hefur milligöngu um að koma á sambandi eða hringja í símaþjónustu Landspítala s. 543 1000. Hún hefur samband við sjúkrahúsprest/djákna.
| |
Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar. Þótt ég lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið ysta haf, einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér. Og þótt ég segði: "Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt, "Þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér. Davíðssálmur 139 |