Skráning nemenda á Landspítala

    Umsjónarmenn / ábyrgðarmenn á Landspítala, þ.e. þeir sem samþykkja nemanda til náms eða þjálfunar á spítalanum, bera ábyrgð á því að hann sé skráður með því að fylla út eyðublað og senda vísinda-, mennta og gæðasviði. 

    Eyðublað (doc) 

    Hverja á að skrá?
    - Alla nemendur, eða starfsmenn í námi, sem eru í námi á framhaldsskólastigi, grunnnámi á háskólastigi, diplóma-, meistara- og doktorsnámi og hvers konar klínsku og rannsókartengdu námi.
    - Alla nemendur, eða starfsmenn í námi, sem eru í námi sem fer allt fram, eða að hluta til á Landspítala, hvort sem um er að ræða félagslegt, klínískt eða rannsóknartengt nám.
    - Alla nemendur, eða starfsmenn í námi, sem nýta sér skrifstofu- eða vinnuaðstöðu á Landspítala.
    - Alla nemendur eða starfsmenn í námi, sem vinna að verkefnum sem byggja á gögnum frá Landspítala, hvort sem um er að ræða upplýsingar úr gagnagrunnum eða verkefni þar sem starfsfólk eða sjúklingar eru viðfangsefni. 
    - Alla starfsmenn í sérfræðinámi, þó svo að námið sé samtvinnað starfi við Landspítala, svo sem þegar um er að ræða nám til sérfræðiréttinda. 
    - Nemendur eða starfsfólk í námi, óháð náms- eða starfshlutfalli.
    - Innlenda sem erlenda nemendur eða starfsmenn í námi.

    Nánari upplýsingar
    Sigrún Ingimarsdóttir (sigruni@landspital.is, sími: 543 1475) og Eygló Ingadóttir (eygloing@landspitali.is, sími: 543 5703), verkefnastjórar á vísinda-, mennta- og gæðaviði Landspítala (VMG).

    Síðast breytt: 18.05.2010 10:35
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli