Stoðþjónusta

Stoðþjónustu á Landspítala er skipt í 4 stoðsvið; mannauðssvið, fjármálasvið, eignasvið og vísinda-, mennta- og gæðasvið. Þeim stýra framkvæmdastjórar sem eiga sæti í framkvæmdastjórn spítalans ásamt framkvæmdastjórum klínískra sviða og forstjóra.

Verkefni framkvæmdastjóra stoðsviða samkvæmt skýringum með skipuriti Landspítala sem tók gildi 8. júní 2009 eru meðal annars eftirtalin:

• Setja upp nýtt skipurit stoðsviðs þar sem einingum er fækkað. Endurskipulagningu skal lokið fyrir 1. október 2009.

Skilgreina og forgangsraða verkefnum stoðsviða sem tiltekin voru á verkefnalista frá apríl 2009 í samræmi við eftirfarandi lista:

  • kjarnaverkefni,
  • sameiginleg verkefni og þá tilgreindir samstarfsaðilar, ábyrgðaraðilar og tímasettur framgangur verkefnis
  • verkefni sem geta flust annað og þá hvert,
  • verkefni sem hægt er að leggja niður,
  • verkefni sem hægt er að úthýsa.

Ábyrgðaraðila hvers verkefnis þarf að tilgreina. Þeim verkefnalista skal skilað til forstjóra fyrir 1. október 2009 og verður hann nýttur við stefnumörkun og hagræðingarkröfu næstu ára.

• Gefa út reglur um samstarf og þjónustu við önnur svið LSH fyrir 1. janúar 2010.

Síðast breytt: 08.06.2009 22:03
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli