Frétt

04. 03 2010

Gleym mér ei til styrktar BUGL

 

Göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL)

Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjósarsýslu (KSGK) stendur fyrir sölu á merkinu
"Gleym mér ei" dagana  5. til 7. mars 2010 á sambandssvæðinu og rennur ágóði óskertur til barna-og unglingageðdeildar Landspítala, BUGL.   Konur úr kvenfélögunum, sem eru 10 innan sambandsins, sjá um söluna og það hafa þær áður gert á svipaðan hátt til styrktar barna- og unglingageðdeild LSH. 

Af þessu tilefni var Sigurlaugu Viborg, forseta Kvenfélagasambands Íslands, afhent fyrsta merkið við hátíðlega athöfn í húsnæði félagsins að viðstöddum stjórnarkonum í KSGK, Ólafi Ó. Guðmundssyni, yfirlækni legudeildar BUGL, Vilborgu G. Guðnadóttur, deildarstjóra legudeildar, Lindu Kristmundsdóttur, deildarstjóra göngudeildar, og Þórunni B. Haraldsdóttur sjúkraliða.

Til baka
Síðast breytt: 12.07.2010 10:12
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli