Frétt

04. 03 2010

Ráðinn hjúkrunardeildarstjóri á deild 15 á Kleppi

 

Jón Snorrason

Jón Snorrason hefur verið ráðinn hjúkrunardeildarstjóri á deild 15 á Kleppi, geðsviði frá og með 1. mars 2010.  Ráðning hans er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefnd hjúkrunarráðs LSH og viðtala.

Jón lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1979 og er nú að ljúka meistaranámi í hjúkrun.  Ritgerð hans heitir ,,Aðferðir sem starfsfólk geðsviðs notar til að róa reiða og spennta sjúklinga".  Hann sótti námskeið í Bretlandi um hvernig á að kenna viðbrögð við ofbeldi og hefur einnig verið leiðbeinandi á námskeiðum í viðbrögðum við ofbeldi frá árinu 1999.

Jón hefur unnið heilmikið frumkvöðlastarf í menntun starfsfólks á geðdeildum, ekki aðeins við að takast á við ofbeldisaðstæður heldur lagt áherslu á að starfsfólkið geti fyrirbyggt ofbeldi með viðeigandi hegðun og næmni á aðstæður.  Hann hefur starfað lengst af sem hjúkrunardeildarstjóri á geðdeildum á Borgarspítala og Landspítala en verið síðustu ár verkefnastjóri í öryggismálum á geðsviði Landspítala. 
 

 

Til baka
Síðast breytt: 12.07.2010 10:12
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli