Frétt
12. 03 2010
Nýr vefur heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala hefur verið opnaður
Nýr vefur bókasafns Landspítala, heilbrigðisvísindabókasafnsins, var opnaður 12. mars 2010. Þetta er einn af sérvefjum upplýsingavefs Landspítala.
Aðgangur breytist ekki að gögnum í áskrift heilbrigðisvísindabókasafnsins, sem flest eru aðeins aðgengileg innan spítalans eða gegnum fjarþjónustu safnsins, Lerki. Margt starfsfólk spítalans nýtir sér þessa þjónustu að heiman eða þar sem það er á ferð. Með nýjum vef heilbrigðisvísindabókasafnsins er einnig horft til þess að bæta þjónustu við nemendur og kennara heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Hlekkur á vefinn er á forsíðu upplýsingavefs Landspítala, www.landspitali. Bein slóð á vef heilbrigðisvísindabókasafnsins er http://bokasafn.landspitali.is
Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala
Til bakaSíðast breytt: 12.07.2010 10:12