Frétt

09. 04 2010

Föstudagspistill 9. apríl 2010

 

Björn Zoëga

Kæru samstarfsmenn!

Ég vona að þið hafið haft það gott um páskana.

Í gær var merkur áfangi í sögu nýs Landspítala þegar stóru bráðamóttökurnar voru sameinaðar. Þótt skoðanir hafi verið mismunandi um ágæti þess var ljóst að niðurskurðurinn sem LSH glímir við var meginhvati þess að farið var af stað núna. Ég vil minna á að markmið með sameiningunni eru:

- að einfalda aðkomu að spítalanum
- að til séu skilvirkir verkferlar fyrir alla sjúklingahópa
- að lækka launa- og rekstrarkostnað spítalans

Áfram verður bráðahjartaþjónusta á Hringbraut ásamt dag- og göngudeild fyrir hjartveika.

Mig langar að hvetja þá starfsmenn sem fara á milli Hringbrautar og Fossvogs til þess að kynna sér þjónustu skutlunnar sem fer nú reglulega á milli bygginganna. Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu okkar.

Í lok næstu viku vonast ég til að geta greint ykkur frá niðurstöðum um rekstur spítalans fyrstu þrjá mánuði ársins.

Kveðjur, Björn
bjornz@landspitali.is

FAGMENNSKA,  ÖRYGGI,  FRAMFARIR,  UMHYGGJA

 

Til baka
Síðast breytt: 02.11.2009 14:18
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli