Frétt
11. 06 2010
Föstudagspistill 11. júní 2010
Ágæta samstarfsfólk!
Eins og þið hafið séð í fjölmiðlum síðustu daga er mikil umræða um hversu mikið á að skera niður á næsta ári, hvort eigi að frysta laun ríkisstarfsmanna og hversu mikið eigi að skera niður í velferðarkerfinu. Ég get fullvissað ykkur um að ég hef engar upplýsingar um hvað eigi að gera eða hvernig þetta muni líta út fyrir spítalann. Um leið og ég hef einhverjar fréttir sem fullvissa er um, mun ég láta ykkur vita. Þangað til, og hvernig sem fer, er aðalverkefni okkar að ná að veita sjúklingum okkar örugga og góða þjónustu og standast fjárhagsáætlun þessa árs.
Ég vona að þið hafið tekið eftir því að á Alþingi hefur verið umræða um stofnun félags til þess að halda utan um nýbygginguna við Hringbraut fyrir spítalann. Í dag voru samþykkt lög um málið á Alþingi og breið samstaða var um það. Því ber sannarlega að fagna. Næsta skref er að dómnefndin fer í gegnum tillögur sem skilað var inn í gær í hönnunarsamkeppni um nýja spítalann. Þær verða svo gerðar opinberar seinna í sumar og sigurvegarinn væntanlega kynntur.
Í dag birtum við á vef spítalans stöðu okkar í svokölluðu skorkorti Landspítala en í kringum stefnumörkun spítalans voru sett ákveðin töluleg markmið sem voru þannig uppbyggð að við gætum borið okkur saman við aðra spítala erlendis. Tölurnar fyrir árið 2009 liggja fyrir en það sem birt er núna eru tölur fyrstu 4 mánuði þessa árs þar sem þær liggja fyrir. Ég bið ykkur að líta á þær og athuga hvort eitthvað getur betur farið. Nefni sérstaklega bætt öryggi sjúklinga þar sem bráðar endurinnlagnir innan 30 daga frá útskrift eru ekki samkvæmt þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Hugsanlegt er að þetta stafi að hluta til af skráningu en unnið er að ítarlegri skoðun á því. Annað sem virðist hafa tekist vel í skilvirkum verkferlum er að hlutfall legusjúklinga sem útskrifast fyrir kl. 12:00 hefur hækkað og ljóst að stuttu eftir að við birtum stefnuna okkar hafa margir hugað sérlega vel að þessu. Sem dæmi má nefna að hjúkrunardeildarstjórinn á meltingar- og nýrnadeild 13E ákvað að skoða hver staða útskrifta fyrir hádegi væri á hennar deild. Á deildinni liggja aðallega sjúklingar frá tveimur sérgreinum, þ.e. meltingarlækningum og nýrnalækningum. Í apríl útskrifuðust fyrir hádegi (fyrir kl. 12:00) 5% sjúklinga meltingarlækninga og 13% sjúklinga nýrnalækninga. Markviss vinna var lögð í að flýta útskriftum í kjölfar þessarar niðurstöðu og hefur það skilað góðum árangri því að í maí útskrifuðust fyrir hádegi 25% sjúklinga meltingarlækninga og 24% sjúklinga nýrnalækninga. Þetta er auðvitað frábær árangur og sýnir að við, sem starfsmenn, getum haft áhrif á umhverfi okkar, breytt verklagi og haft verkferlana skilvirkari.
Þar sem nú er komið sumar verður lengra á milli föstudagspistla en um leið og eitthvað fréttnæmt gerist læt ég ykkur vita í gegnum þessa pistla. Ég vona að þið hafið það gott í sumarfríum ykkar.
Mig langar svo í lokin að nefna tvennt. Annað er það að Landspítali er 80 ára og sannarlega ástæða til þess að halda upp á afmælið. Það ætlum við meðal annars að gera með því að opna sýninguna Landspítali í 80 ár í gamla spítalanum við Hringbraut núna 15. júní, kl. 13:30. Forseti Íslands opnar sýninguna og allir eru velkomnir. Ég hvet ykkur til þess að skoða þessa sýningu en hún verður opin til jóla. Hitt er það að í dag er opnaður á upplýsingavef spítalans styrktarvefur Landspítala. Þar verður hægt að styrkja spítalann beint og einstök verkefni eða kaupa minningarkort hinna ýmsu minningarsjóða. Stuðningur einstaklinga og félaga skiptir mjög miklu máli fyrir spítalastarfsemina, eins og við vitum, og þar með allt samfélagið. Styrktarvefurinn er aðgengilegur og einfaldur. Bendum fólki utan spítalans á hann!
Baráttukveðjur, Björn
bjornz@landspitali.is
UMHYGGJA, FAGMENNSKA, ÖRYGGI, FRAMÞRÓUN
Til baka