Útboð og verðfyrirspurnir

Velkomin á svæði innkaupa og vörustjórnunar

Þessu svæði er ætlað að vera til stuðnings starfsemi deildarinnar hvað varðar útboð, verðfyrirspurnir og annað það sem að innkaupum snýr og ástæða þykir til að koma á framfæri hverju sinni.

Svæðið verður uppfært einu sinni í mánuði og miðast við 15. hvern mánaðar, eða fyrsta virka dag eftir það. Í sérstökum tilvikum verða settar inn nýjar upplýsingar 1. hvern mánaðar.

Útboð á vegum Ríkiskaupa eru listuð upp sérstaklega með tengingu á vef Ríkiskaupa þar sem nálgast má öll gögn er þau varða.

Verðfyrirspurninr á vegum Landspítala eru listuð upp sérstaklega og á svæðinu má nálgast þau gögn er verðfyrirspurnina varða. Almenna reglan skal vera sú að tilboð eftir verðfyrirspurn eru opnuð 2 - 3 vikur eftir auglýsingu og mun opnunartími koma fram í gögnum og á svæðinu. Búast má við að einhverjar auglýsingar og gögn verði á svæðinu þó svo að opnun hafi farið fram ef auglýsingartíminn er styttri en 4 vikur. 

Niðurstöður tilboða og verðfyrirspurna munu einnig vera á svæðinu frá 15. til 15. hvers mánaðar.

    Síðast breytt: 07.05.2010 09:58
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli