Fæðingardeild 23A

Á fæðingardeild 23A er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með þekkta áhættuþætti í þungun sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu. Fæðingardeildin er stærsta fæðingardeild landsins með 7 vel útbúnum fæðingarstofum.Meginmarkmið fæðingardeildarinnar er að foreldrar njóti faglegrar þjónustu þar sem velferð móður og barns er höfð að leiðarljósi. Leitast er við að skapa þægilegt og rólegt umhverfi þar sem konan getur verið sjálf við stjórnvölinn í fæðingunni með góðum stuðningi frá fagfólki. Reynt er að takmarka inngrip í eðlilegar fæðingar án þess þó að skerða öryggi móður og barns. Traust, virðing og trúnaður er ætíð hafður að leiðarljósi og þess gætt að veita fæðandi konum og aðstandendum sem bestar upplýsingar á hverjum tíma.


Yfirljósmóðir er Guðrún G. Eggertsdóttir gudregg@landspitali.is  
Yfirlæknir er Hildur Harðardóttir hhard@landspitali.is
Heimsóknartímar í samráði við starfsfólkið
Símar 543 3247 / 543 3049
Staðsetning á 3. hæð í kvennadeildahúsi

Síðast breytt: 14.10.2009 14:19
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli