Vísindi og menntur
Landspítali er ein helsta menntastofnun landsins á sviði heilbrigðisvísinda með öflugu háskólastarfi. Þar er kröftugt vísindastarf og hefur birting ritrýndra greina starfsmanna aukist stöðugt. Rannsakendur hafa samstarf á innlendum og alþjóðlegum vettvangi og sækja verulegt fé til vísindarannsókna í innlenda og erlenda samkeppnissjóði.
Flestir nemendur í heilbrigðisvísindum fá sína klínísku þjálfun á spítalanum. Nemendurnir eru árlega hátt í 1.100 talsins; framhaldsskólanemendur, háskólanemendur úr grunn- og framhaldsnámi og nemendur í framhalds- og sérfræðinámi að loknu háskólanámi. Meistara- og doktorsnemum fjölgar stöðugt á spítalanum.
Skipulag visínda, menntunar og kennslu á Landspítala (pdf)
Um skráningu nemenda á Landspítala - eyðublað