Framkvæmdastjóri hjúkrunar
Framkvæmdastjóri hjúkrunar heyrir beint undir forstjóra og ber ábyrgð gagnvart honum. Forstjóri er næsti yfirmaður hans. Framkvæmdastjóri hjúkrunar situr í framkvæmdastjórn. Hann ber ábyrgð á að móta sýn og markmið faglegra málefna er varða meðferð sjúklinga og faglega þróun heilbrigðisstarfsmanna.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar ber í þessum tilteknu faglegu málefnum ábyrgð á starfi hjúkrunar á LSH. Hann styður við faglega þróun og starfsþróun hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, sjúkraliða, presta og djákna en ber einnig að efla faglega þróun allra annarra heilbrigðisstétta í samvinnu við aðra framkvæmdastjóra.
Nánar um hlutverk framkvæmdastjóra hjúkrunar
í skýringum með skipuriti Landspítala
Síðast breytt: 11.06.2009 11:38