A7 smitsjúkdómar og alm. lyflækningadeild
|
Aðsetur: 7. hæð A álma, Fossvogi Símanúmer deildar: 543 6770 Vaktstjóri hjúkrunar: 825 5039 Símatímar aðstandenda kl. 11:00-12:00 og 18:30-19:30 alla daga vikunnar. |
Meginstarf deildarinnar er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráða smitsjúkdóma. Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðamóttöku eða gæsludeild. Á deildinni eru sérútbúnar einangrunarstofur ætlaðar sjúklingum sem þurfa einangrun vegna smitsjúkdóma eða skerts ónæmiskerfis.
Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita upplýsingar varðandi sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.
Landspítali er kennsluspítali og nemendur í heilbrigðisfræðum og tengdum greinum stunda hluta af námi sínum á spítalanum. Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga og eru alltaf á ábyrgð og undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.
Göngudeild smitsjúkdóma er starfrækt á G-3.
Stefanía Arnardóttir s: 543 6774, netfang: stefarn@landspitali.is
Magnús Gottfreðsson netfang: magnusgo@landspitali.is
Síðast breytt: 02.06.2009 15:00