Dagdeild blóð- og krabbameinslækningar 11B
Aðsetur: Aðalbygging Hringbraut 1.h. B álma
Deildin er opin kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.
Símanúmer deildarinnar eru 543 6130 og 543 6100.
Ritarar taka við skilaboðum til hjúkrunarfræðinga og lækna sem hafa svo samband.
Hjúkrunardeildarstjóri: Gunnhildur Magnúsdóttir
Yfirlæknir lyflækninga krabbameina: Halla Skúladóttir
Yfirlæknir blóðlækninga: Hlíf Steingrímsdóttir
Við komu á deildina þarf að tilkynna sig hjá móttökuritara. Komugjöld miðast við gjaldskrá sem gefin er út af Tryggingastofnun ríkisins og greitt er við brottför af deildinni. Örorku- og ellilífeyrisþegar og þeir sem eru með afsláttarkort greiða lægra gjald. Hægt er að láta senda sér gíróseðil heim, en þá bætist við innheimtukostnaður. Móttökuritarar veita fúslega frekari upplýsingar um kostnað og innheimtu.
Við leggjum áherslu á að sjúklingar og aðstandendur fái góða og örugga þjónustu. Í því felst m.a. að allar upplýsingar séu skýrar. Einnig að sjúklingar og aðstandendur séu virkir þátttakendur þegar ákvarðanir eru teknar um meðferð og hjúkrun og að samskipti séu skýr og opin. eE eitthvað er óljóst er starfsfólkið alltaf reiðubúið að greiða úr því.
Deild 11B tilheyrir lyflækningasviði og er á fyrstu hæð í elsta hluta Landspítala Hringbraut, í C- og B-álmu. Í C-álmu eru móttökustofur lækna og biðstofa, en í B-álmu eru stofur fyrir hjúkrun og meðferðir.
Meginþjónusta deildarinnar er við sjúklinga með krabbamein og blóðsjúkdóma sem koma í lyfjameðferð, einkenna- og stuðningsmeðferð og eftirlit.