Læknaráð

Stjórn læknaráðs Landspítala 2008-2009

Læknaráð starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og starfsreglum sem staðfestar hafa verið af forstjóra.

Lögum samkvæmt skal læknaráð vera forstjóra og framkvæmdastjórn til ráðuneytis um læknisþjónustu og fagleg atriði í rekstri spítalans. Það ber að leita álits læknaráðs um mikilvægar ákvarðanir sem varða heilbrigðisþjónustu stofnunarinnar.

Stjórn læknaráðs er skipuð læknum frá öllum sviðum spítalans auk fulltrúa deildarlækna.

Starfsreglur læknaráðs (pdf)

Upplýsingar fyrir þá sem sækja um læknisstöður á Landspítala

Skrifstofa læknaráðs:
Kvennadeildahús, 4. hæð (24C)
Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 8:00 - 16:00.
Netfang: laeknarad@landspitali.is

Formaður læknaráðs:  Þorbjörn Jónsson
Skrifstofustjóri: Örn Þ. Þorvarðsson

Ársskýrsla 2009 - 2010 (pdf)

Fréttir

23.November.2009

Læknaráð ályktar um stöðu Landspítala í heilbrigðisþjónustunni

"Heilbrigðisþjónustan er ein af meginstoðum íslensks samfélags" er yfirskrift ályktunar læknaráðs Landspítala 20. nóvember.

lesa meira
30.May.2009

Formaður læknaráðs endurkjörinn

Þorbjörn Jónsson var endurkjörinn formaður læknaráðs á aðalfundi þess 8. maí 2009. Ályktað var um nýtt háskólasjúkrahús og skipulagsbreytingarnar á spítalanum.

lesa meira

Síðast breytt: 03.06.2010 10:20
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli