Líknardeild Kópavogi

Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur 

Staðsetningu deildarinnar má sjá nánar á korti. 

Á líknardeildinni er heimilislegt umhverfi og reynt að mæta þörfum sjúklings og fjölskyldu hans eins og framast er unnt. Veitt er læknis- og hjúkrunarþjónusta, endurhæfing og sálgæsla sem og félagsráðgjöf og annar stuðningur ef þörf er á. Deildin skiptist í 7 daga legudeild, 5 daga deild, dagdeild og göngudeild. Í sama húsi hefur Heimahlynning aðsetur. Flestir sjúklinganna eru með krabbamein. Á deildinni eru 6 einbýli og 2 tvíbýli. Snyrtingar eru milli herbergja. Hægt er að geyma verðmæti í læstum skáp hjá starfsfólki en eindregið er mælst til að ekki sé verið með mikil verðmæti á stofum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölskylduhjúkrun þar sem unnið er markvisst að því að veita heildræna einstaklingsmiðaða þjónustu til skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra og starfa hinar ýmsu starfsstéttir náið saman.  

Líknardeildin er hugsuð sem tímabundin innlögn fyrir einstaklinga með ólæknandi, langt genginn sjúkdóm og skertar lífslíkur þar sem læknanlegri meðferð hefur verið hætt og öll meðferð sem veitt er (krabbameinsmeðferð eða önnur meðferð) miðast að því að fyrirbyggja eða lina einkenni.

Markmið þjónustunnar er að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem eru með ólæknandi (langt gengna) sjúkdóma og felst meðferðin í að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu.

Starfið á líknardeildinni grundvallast á skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) frá 2002 um líknarmeðferð en þar kemur fram:

Líknarmeðferð er meðferð sem miðar að því að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem eru með lífshættulega sjúkdóma og felst meðferðin í að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Líknarmeðferð á við snemma á veikindatímabilinu samhliða annarri meðferð (krabbameinslyfjum og geislum) sem notuð er til að lina einkenni en jafnframt að lengja líf.

Helstu ástæður innlagna á líknardeild eru: 

  • Meðferð einkenna 
  • Meðferð við lok lífs 
  • Hvíld og endurhæfing fyrir þá sjúklinga sem annars dvelja heima.

Áhersla er á teymisvinnu starfsfólks og lögð áhersla á góð samskipti og samvinnu við sjúklinginn og fjölskyldu hans.

Einkunnarorð líknardeildarinnar eru umhyggja, virðing og fagmennska.

 

Síðast breytt: 15.01.2010 13:33
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli