Dagdeild
Dagdeildin var opnuð í september 2007 og er ætluð sjúklingum með ólæknandi langvinnan sjúkdóm þar sem vægi líknarmeðferðar er hátt. Sjúklingar dvelja heima og fá þjónustu heima, oftast hjá sérhæfðri heimaþjónustu: Heimahlynningu LSH eða hjúkrunarþjónustunni Karítas. Deildinni var komið á fót með sameiginlegu átaki LSH og Oddfellow reglunnar en reglan lagði til fé til uppbyggingar deildarinnar. Deildin er í næsta húsi við líknardeildina í Kópavogi.
Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðings, sjúkraliða, sjúkraþjálfara og listmeðferðarfræðings. Teymið vinnur í samstarfi við lækna líknardeildar, félagsráðgjafa, prest og sálfræðing. Hjúkrunarfræðingur heldur utan um daglega starfsemi deildarinnar.
Dagdeildin er hugsuð sem stuðningur við þá skjólstæðinga sem eru með ólæknandi sjúkdóm og dvelja heima. Á dagdeildinni er lögð áhersla á forvarnarstarf, meðferð og eftirlit einkenna ásamt endurhæfingu til að viðhalda sjálfsbjargargetu og stuðla að sem mestum lífsgæðum. Mikil samvinna er við heimaþjónustur og líknardeild. Dagdeildin er opin 2 virka daga (þriðjudag – fimmtudag) frá kl. 9-15:30. Í boði er dvöl 1-2 dag í viku, í 12 vikur í senn. Ef þörf er á lengri dvöl er það metið hjá hverjum og einum.
Sækja þarf um dvöl á dagdeild með því að senda beiðni á:
Dagdeild líknardeildar
Hús nr. 9
Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur
Náin samvinna er við líknarráðgjafateymi LSH, heimahlynningu sem hefur aðsetur á neðri hæð líknardeildar og hjúkrunarþjónustuna Karítas.