Mannauðssvið
Eiríksgata 5, 1. og 2. hæð
Sími 543 1300 og 543 1330
Fax 543 2359
Afgreiðslutími virka daga kl 8:00 – 16:15
Mannauðssvið ber ábyrgð á stefnumótun, skipulagningu og samhæfingu mannauðsstjórnunar í samræmi við stefnu Landspítala. Stefna mannauðssviðs er að stuðla að öryggi, jafnrétti og vellíðan allra starfsmanna á Landspítala, styrkja þá m.a. með endur- og símenntun til þess að veita bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni og gera þeim kleift að sinna þríþættu hlutverki Landspítala.
Starfsmenn mannauðssviðs veita starfsmönnum og stjórnendum á Landspítala ráðgjöf og stuðning í tengslum við málefni er snerta mannauð spítalans. Þeir miðla nútíma viðhorfum og þekkingu varðandi heilsuvernd á vinnustað, sinna starfsmannaheilsuvernd, starfsþróun, gerð og túlkun kjarasamninga, lögfræðimálum og launavinnslu. Einnig er veitt aðstoð og ráðgjöf í tengslum við áhættumat starfa
Skrifstofa framkvæmdastjóra mannauðsviðs
Á skrifstofu framkvæmdastjóra mannauðssviðs fer fram umsjón með rekstri sviðsins, sameiginleg skipulagning, fundir og skjalastjórnun. Auk þess annast skrifstofan samræmingu og samhæfingu verkefna sem mannauðssvið ber ábyrgð á. Mikilvægir málaflokkar eru m.a. stefnumótun í mannauðsmálum Landspítala, kjara- og launanefnd sem fer með kjarasamningsumboð spítalans, siðanefnd stjórnsýslurannsókna, stuðnings- og ráðgjafarteymi starfsmanna og öryggisnefnd Landspítala.
Framkvæmdastjóri mannauðsmála er Erna Einarsdóttir sími 543 1343 netfang erna@landspitali.is
Skrifstofustjóri er Karólína Sveinsdóttir, sími 543 1334, netfang karolins@landspitali.is
Launadeild
Launadeild sér um að upplýsingar um starfsmenn í starfsmannakerfinu séu réttar, um rekstur viðveruhluta Vinnustundar, aðstoðar við launauppgjör og skilar launagögnum til launaútreiknings. Markmið launadeildar er að starfsmenn Landspítala fái greidd rétt laun á réttum tíma. Starfsmenn launadeildar tryggja eftir bestu getu að launavinnsla, afgreiðsla launa og launatengdra mála hljóti afgreiðslu í samræmi við samninga, lög, verklagsreglur og leiðbeiningar. Móttaka, úrvinnsla, skráning, úttektir og varsla launagagna eru grundvallarþættir í starfsemi deildarinnar.
Helstu verkefni launadeildar:
• Útreikningar og útborgun launa
• Móttaka, úrvinnsla, skráning, úttektir og varsla launagagna
• Viðhald starfsmannaskráa
• Eftirlit og uppfærsla á úttekt og ávinnslu leyfa
• Skýrslugerðir og úttektir úr launagagnagrunnum
• Starfsmannaskjalasafn
Deildarstjóri launadeildar er Ásgeir M. Kristinsson, sími 543 1312, netfang asgeirmk@landspitali.is
Lögfræði- og kjaradeild
Lögfræði- og kjaradeild annast lögfræðileg mál spítalans og er stjórnendum til aðstoðar og ráðgjafar í þeim efnum. Deildin ber ábyrgð á að samræma upplýsingamiðlun um kjaramál, launasetningu og réttindi og skyldur starfsmanna Landspítala samkvæmt lögum. Lögfræði- og kjaradeild fylgir eftir ákvörðunum og stefnumótun kjara- og launanefndar auk þess að sjá um framkvæmd og túlkun kjarasamninga og gerð stofnanasamninga.
Helstu verkefni lögfræði- og kjaradeildar:
• Sérhæfing í starfsmannarétti, vinnurétti og stjórnsýslurétti.
• Sérhæfing í sjúkrahúsrétti og lagaumhverfi heilbrigðisstofnana og sjúklinga.
• Samskipti við dómstóla, úrskurðarnefndir og opinberar stofnanir.
• Ráðgjöf og nefndarstörf samkvæmt ákvörðun forstjóra/framkvæmdastjóra sviðsins.
• Túlkun laga og stjórnvaldsfyrirmæla í starfi Landspítala.
• Túlkun kjarasamninga, gerð stofnanasamninga og samskipti við stéttarfélög.
Deildarstjóri lögfræði- og kjaradeildar er Oddur Gunnarsson, sími 543 1333, netfang oddurg@landspitali.is
Starfsumhverfisdeild
Hlutverk starfsumhverfisdeildar er að veita starfsmönnum og stjórnendum Landspítala ráðgjöf, stuðning og þjónustu.
Á starfsumhverfisdeild eru mótaðar og samræmdar áherslur mannauðsstjórnunar spítalans m.a. varðandi ráðningar starfsmanna, þjálfun, endur- og símenntun, starfsþróun og starfslok.
Starfsmenn starfsumhverfisdeildar móta og leiða vinnuverndarstarf innan spítalans, heilsuvernd og heilsueflingu starfsmanna ásamt því að vera Jafnréttisnefnd Landspítala til ráðgjafar.
Helstu verkefni starfsumhverfisdeildar:
• Starfsþróun og fræðsla
• Ráðningar og kynningar
• Erlendir starfmenn
• Heilsa, öryggi og vinnuvernd
Deildarstjóri starfsumhverfisdeildar er Svava Kr. Þorkelsdóttir, sími 543 1337, netfang svavath@landspitali.is