Leit
Loka

Meltingar- og nýrnadeild

Sinnir sjúklingum með almenn læknisfærðileg vandamál, nýrnasjúkdóma og sjúkdóma í meltingarfærum

Deildarstjóri

Guðrún Yrsa Ómarsdóttir (tímab.)

gudyrsa@landspitali.is
Yfirlæknar

Einar Stefán Björnsson)

einarsb@landspitali.is

Margrét Birna Andrésdóttir

mband@landspitali.is

Banner mynd fyrir  Meltingar- og nýrnadeild

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Meltingar- og nýrnadeild - mynd

Hér erum við

Hringbraut - Aðalinngangur. 2. hæð í álmu E

Hagnýtar upplýsingar

Meginviðfangsefni 
  • Sjúkdómar í meltingarfærum
  • Nýrnasjúkdómar
  • Almenn lyflæknisfræðileg vandamál

Sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild. 

Legudeild með 19 rúmum.
Starfsmenn eru um 60 talsins.
Meðaldvalartími er um 7 dagar.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.  

  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
  • Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
  • Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn, allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
  • Stofugangur er kl. 09:00-11:00
  • Heimsóknartímar eru 16:30 - 19:30 virka daga og 14:30-19:30 um helgar. Heimsóknir barna yngri en 12 ára eftir samkomulagi
  • Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
  • Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
  • Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur
  • Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
  • Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks

  • Morgunverður um kl. 8:30
  • Hádegisverður um kl. 12:00
  • Miðdegiskaffi um 14:30
  • Kvöldmatur kl. 17:30
  • Kvöldkaffi um 19:30
  • Starfsfólk aðstoðar við persónulega hirðingu eftir þörfum hvers og eins
  • Á ganginum er  kæliskápur fyrir sjúklinga 
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa hringingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans. 
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
  • Hraðbanki er í anddyri á 1. hæð, sjálfsalar á 2. hæð og við inngang á bráðamóttöku
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga á Landspítala Hringbraut kl. 10:00 á fjórðu hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega

Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.  

Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:

  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á
  • Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er
 

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.

Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.

Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.

Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.

 

 
Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu. Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir. Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi. Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim. Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt. 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?