Kæra samstarfsfólk!
Undanfarnar vikur hafa verið þungar, eins og oft vill verða á þessum árstíma. Margir leita til okkar og við finnum hvernig álagið eykst ár frá ári. Það mæðir mikið á starfsfólki og sjúklingum þegar ástandið á sjúkrahúsinu er eins og við höfum séð undanfarið. Þó höfum við síðasta árið gripið til mjög árangursríkra úrræða eins og opnun bráðalyflækningadeildar (A2), við höfum breytt ýmsum verkferlum og bætt þjónustu. Afar gott dæmi um frábært starf er greiningarmóttaka fyrir aldraða (sjá myndskeið) þar sem við höfum náð miklum árangri í þjónustu við þennan viðkvæma hóp. Sömuleiðis vinnum við stöðugt að því að einfalda okkar innri ferla (sjá myndskeið) til að hraða meðferð og útskriftum og ýmsar nýjungar hafa verið teknar upp, eins og sýklalyfjagjöf í heimahúsum (sjá myndskeið). Það er því heilmargt í gangi af hálfu spítalans í þeim mikla vanda sem mætir okkur vegna flæðis sjúklinga og við munum halda því áfram. Það breytir því þó ekki að ábyrgðin á vanda þeirra sem eru tilbúnir til útskriftar af spítalanum sem og lausnirnar liggja utan Landspítala. Ég hef átt í góðu samtali við ráðherra og ráðuneyti um þennan brýna vanda og þar er skilningur á stöðu mála. Við vinnum áfram að lausn málsins með þeim og öðrum sem ábyrgðina bera.
Geðheilbrigðisþjónusta - sjúklingurinn í öndvegi var yfirskrift stefnumótunarfundar sem haldinn var síðastliðið haust á vegum geðsviðs Landspítala. Um var að ræða endurtekningu á stefnumótunarvinnu frá árinu 2009 sem hafði vísað okkur leiðina um átta ára skeið. Á fundinum nú hittust yfir hundrað haghafar í þessum mikilvæga málaflokki. Afraksturinn er kynntur í skýrslu þar sem horft er heildrænt á geðheilbrigðisþjónustuna, skerpt á hlutverki og ábyrgð geðsviðs Landspítala um leið og litið er til samspils við og ábyrgð annarra stofnana. Sérstök áhersla var lögð á samvinnu og notendamiðaða þjónustu. Það er okkar mat að þessi skýrsla sé mikilvægt innlegg í frekari stefnumótunarvinnu fyrir allan málaflokkinn enda þarna fjallað um framtíðarsýn og áherslur næstu ára.
Góða helgi öll sömul!
Páll Matthíasson