Kæra samstarfsfólk!
Undanfarið hefur mikið gengið á í þjóðfélaginu; náttúruöflin gert illþyrmislega vart við sig og þung undiralda verið í umræðunni um Landspítala.
Fyrst vil ég þakka ykkur öllum sem komið hafa að umönnun þeirra sem slösuðust og áttu og eiga um sárt að binda vegna alvarlegra slysa síðustu vikur og nú síðast í dag. Mér er sérstaklega hugsað til þess unga samstarfsfólks okkar sem fyrir réttri viku hélt af stað í skíðaferð norður í land en mátti takast á við erfiða lífsreynslu þegar önnur tveggja rúta sem flutti það fór út af veginum. Það er mildi að betur fór en á horfðist þótt enn sé hluti hópsins að glíma við líkamlegar afleiðingar og þau öll við hinar andlegu, sem oft sitja lengi hjá manni.
Margir okkar núverandi og fyrrverandi samstarfsmanna minnast um þessar mundir hinna hörmulegu atburða í Súðavík fyrir réttum 25 árum þegar snjóflóð féll þar og hreif með sér fjölda fólks. Frá Landspítala og Borgarspítala barðist hópur starfsfólks vestur með varðskipi og þegar til Súðavíkur kom reyndi á alla mögulega þætti fagmennsku, útsjónarsemi og mennsku.
Snjóflóðið sem féll á Flateyri í vikunni var rækileg áminning um skelfinguna sem snjóflóð geta valdið. Sár reynsla úr slíkum atburðum getur fylgt fólki lengi og leiðir hugann að mikilvægi áfallahjálpar sem segja má að eigi rót sína á Íslandi, einmitt hjá okkur á Landspítala. Það var brautryðjandi starfsfólk Landspítala sem barðist fyrir þróun þessa mikilvæga meðferðarforms í talsverðu andstreymi. Því var áhrifamikið að lesa nýlega upprifjun Hildar Helgadóttur, hjúkrunarfræðings og núverandi forstöðumanns krabbameinsþjónustu okkar á Facebókarsíðu sinni af þessum válegu atburðum. Hildur var meðal frumkvöðlanna en einnig vil ég sérstaklega nefna Rúdolf Adolfsson geðhjúkrunarfræðing og Tómas Zoëga geðlækni. Framsýni þeirra og Vilborgar Ingólfsdóttur hjúkrunarfræðings var lykilþáttur. Vilborg stóð vaktina fyrir hönd Landlæknis í aðgerðamiðstöð stjórnvalda þessa dimmu daga og skynjaði mikilvægi áfallateymisins og sá til þess að það fór vestur. Í kjölfarið hefur skilningur á mikilvægi andlegrar jafnt sem líkamlegrar heilsu í kjölfar alvarlegra slysa og áfalla aukist. Baráttu þessa fólks eigum við mikið að þakka.
Síðustu daga og vikur hefur spítalinn verið mjög áberandi í umræðunni; í fjölmiðlum, meðal almennings og stjórnmálamanna. Okkur öll sem á Landspítala starfa tekur sárt þegar sjúklingar eða aðstandendur þeirra upplifa óöryggi hjá okkur eins margir hafa greint frá. Öllu jafna fylgir þó hrós til okkar frábæra starfsfólks sem svo sannarlega leggur sig fram við erfiðar aðstæður. Öll viljum við gera okkar allra besta og hluti af því er að fjalla um þær áskoranir sem við tökumst á við. Við veigrum okkur ekki við samtalinu hér á Landspítala og oft koma til mín frábærar hugmyndir beint úr framlínu sem verða að veruleika og almennt eru ábendingar mjög lausnamiðaðar og hjálplegar. Verkefni okkar allra er að sjá til þess að fólk fái sem besta og öruggasta þjónustu og auka skilning samfélagsins á okkar mikilvægu störfum og áskorunum.
Sá vandi heilbrigðiskerfisins sem birtist sérstaklega á bráðamóttökunni en einnig á öðrum deildum spítalans þarf samhæft átak til að lausn finnist. Í vikunni skilaði Embætti landlæknis minnisblaði til heilbrigðisráðherra. Þar var farið yfir ástandið á bráðamóttöku eins og það hefur verið undanfarnar vikur og bent á brýn úrlausnarefni. Ábendingar Embættis landlæknis komu okkur ekki á óvart og sömuleiðis ekki sú árétting að þrátt fyrir að til fjölmargra aðgerða hafi verið gripið innan og utan spítalans sé ekki nóg að gert. Strax í kjölfarið funduðum við í ráðuneytinu ásamt embættinu.
Um er að ræða langtímaverkefni sem snýr að öllu heilbrigðiskerfinu en vandinn nú er bráður og bregðast verður við því ástandi. Í samstarfi eru heilbrigðisráðuneytið og Landspítali að setja af stað átakshóp til að finna lausnir á bráðum vanda Landspítala og hrinda þeim lausnum í framkvæmd. Þar verður gengið fram af fullum krafti á næstu vikum. Á sama tíma vinnum við áfram að dýpri umræðu og þeim víðtækari kerfisbreytingum sem þörf er á til lengri tíma.
Góða helgi!
Páll Matthíasson