Leit
Loka

Sérnámsgrunnslæknar

Sérnámsgrunnsár á Landspítala er tími reynslu og náms fyrir nýútskrifaða lækna

Banner mynd fyrir  Sérnámsgrunnslæknar

Hagnýtar upplýsingar 

Sýna allt

Sérnámsgrunnsár (áður kandídatsár) er fyrsti hluti formlegs sérnáms á Íslandi og tími reynslu og náms fyrir nýútskrifaða lækna. Sérnámsgrunnslæknar fá tækifæri til að beita þekkingu sinni úr grunnnáminu, fræðast betur um klíníska læknisfræði og öðlast reynslu sem nýtist til sjálfstæðra vinnubragða í frekara sérnámi og starfi sem læknar.

Starfstöðvarnar eru allar samþykktar af mats- og hæfisnefnd sem fullgildar námsstöðvar. Þar starfa sérfræðilæknar sem búa yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu á öllum helstu sviðum læknisfræðinnar. Á starfsstöðvunum eru þjálfaðir og reyndir handleiðarar, sem munu stuðla að því að sérnámsgrunnslæknar fái sem besta þjálfun og handleiðslu á námsárinu.

Á námsárinu gefast tækifæri til að takast á við mismunandi vandamál svo sem algenga minniháttar áverka, flókna fjöláverka, margbreytilega læknisfræðilega sjúkdóma og sérhæfð vandamál. Þar öðlast sérnámgrunnslæknar tækifæri til að bæta færni, kunnáttu, faglega framkomu og vaxa og dafna sem læknar.

Mynd frá móttökudögum í júní 2022
Mynd frá móttökudögum í október 2022
Mynd frá móttökudögum í júní 2023
Mynd frá móttökudögum í október 2023

Við óskum ykkur góðs gengis.

 Fyrir hönd kennsluráðs um sérnámgrunn.
Inga Sif Ólafsdóttir yfirlæknir sérnámsgrunnslækna
Sigrún Ingimarsdóttir verkefnastjóri sérnámsgrunnlækna

Staðsetning: Menntadeild, Skaftahlíð 24, Landspítala
Netfang: sigruni@landspitali.is, sími: 543 1475,  825 3682 

Kynningar á sérnámsgrunnsári, september 2023

Kynningar á móttökudögum, október 2023

Umsóknir um stöður í sérnámsgrunni á Íslandi

Stöður í sérnámsgrunni á Íslandi eru auglýstar í september. Venjulega eru umsóknir miðaðar við 12 mánaða starf frá og með miðjum júní eða síðar. Utan hefðbundins umsóknartíma er möguleiki á að óska eftir síðbúinni afgreiðslu með því að senda fyrirspurnir á netfangið: sigruni@landspitali.is, gjarnan með fylgiskjali (veljið að vista skjalið) og öðrum umsóknargögnum (sjá lið 7 í fylgiskjalinu).

Umsagnarbréf – Leiðbeiningar vegna umsókna um sérnámsgrunn:

- Á íslensku (doc)
- Á ensku (doc)
- Á dönsku (doc)

ATH þetta er word skjöl til að fylla út, en svo þarf að vista þau í tölvunni áður en þau eru send.

Móttökudagar

Dagskrá móttökudaganna er hugsuð sérstaklega með þarfir sérnámsgrunnslækna í huga og miðast bæði við starf á sjúkrahúsi og heilsugæslustöð. Það er skylda að taka þessa daga áður en starf hefst á deildum og stöðvum. Sjá yfirlit hér fyrir neðan yfir næstu móttökudaga. Starf á deildum hefst venjulega fyrsta virka daginn að loknum móttökudögum eða á skilum síðar í blokkinni. Mögulegar upphafsdagsetningar koma fram í fylgiskjalinu sem senda skal með umsókninni.

Næstu móttökudagar og mögulegur tími til að hefja sérnámsgrunn:

Dagsetningar

Möguleg tímasetning fyrir upphaf starfs að undangengnum móttökudögum

5. – 9. júní 2023

Júní og ágúst eða síðar.

2. – 6. október 2023

Október, desember, febrúar eða apríl.

3. – 7. júní 2024

 Júní, ágúst eða síðar

30. september – 4. október 2024

Október, desember, febrúar og apríl 

2 – 6. júní 2025

 Júní, ágúst eða síðar.

29. september - 3. október 2025

 Október, desember, febrúar og apríl

Applicants who do not have Icelandic as first language

All applicants are welcome to apply for „sérnámsgrunn“ which is a rotating internship year (foundation year) in Iceland that is the first stage of formal specialist training in Iceland. Applicants have to have a medical degree before starting „sérnámsgrunnur“, from an internationally recognized Medical University and provide a Certificate of Confirmity (Letter of Confirmity) from their Medical University, according to requirements from the Directorate of Health in Iceland (Embætti Landlæknis). Applicants who are graduates from universities outside of EU/EES countries will be evaluated by Embætti landlæknis and can expect to be asked to undergo medical exams from the University of Iceland. 

For the application to be processed, all applicants who do not have Icelandic as native language will need to provide a certificate of B2 proficiency in Icelandic according to the common European Framework of Reference for Languages from a certified language school. Applicants need to be able to discuss matters of health-related issues with patients, colleges and other members of staff in Icelandic. All clinical documentation needs to adhere to Icelandic laws for medical records nr. 55/2009. At Landspitali all clinical documentation needs to be in Icelandic unless the chief medical officer makes an exemption from this.
Furthermore, applicants need to be able to function within the Icelandic health system and have knowledge of the Icelandic health laws and regulations.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?