Kæra samstarfsfólk!
Það var ánægjulegt að taka við jafnlaunavottun fyrir hönd Landspítala nú í vikunni. Við erum afskaplega stolt af þessari vottun enda ekki hlaupið að því að ná henni í jafn flókinni stofnun og Landspítali er. Um 800 starfsmenn tóku þátt í þeirri mikilvægu vinnu sem lá til undirbúnings vottuninni og vil ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir. Vinnan hófst formlega hjá okkur haustið 2018 og hefur stýrihópur verkefnisins og verkefnastjóri haldið utan um verkefnið af festu og metnaði. Niðurstaðan sýnir í heildina óverulegan kynbundinn launamun á Landspítala sem er sérstaklega gleðilegt. Jafnréttismálin eru samt þeirrar gerðar að þar þurfum við og eigumalltaf að vera á tánum – þetta er staðall sem við ætlum, eigum og viljum fylgja eftir með stöðugum umbótum áfram. Til hamingju öll!
Landspítali hefur undanfarið tekið þátt í umfangsmiklum viðbúnaði vegna kórónaveirunnar Novel (2019-nCoV) sem varð fyrst vart í Wuhan borg í Kína. Hlutverk Landspítala er mjög mikilvægt komi til þess að smit greinist á Íslandi og ég verð að nota þetta tækifæri til að hrósa sýkla- og veirufræðideild spítalans. Þar tókst okkar sérlega hæfa fólki að gera greininguna mögulega en um er að ræða mjög flókið ferli. Prófið er þannig ekki hefðbundið „kit“ heldur krefst gríðarlegrar þekkingar og útsjónarsemi og þar búum við Íslendingar svo vel að ekki er komið að tómum kofanum á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Hér er um að ræða afrek sem skiptir gríðarlega miklu máli, hvernig sem útbreiðsla veirunnar þróast. Farsóttarnefnd Landspítala fundar daglega um málið með viðeigandi aðilum utan spítala og heldur framkvæmdastjórn og viðbragðsaðilum vel upplýstum. Á fimmtudag fundaði farsóttarnefnd og viðbragðsstjórn spítalans sérstaklega um málið og óhætt er að segja að unnið er af mikilli festu til að tryggja að Landspítali geti brugðist við. Ég hvet starfsfólk til að fylgjast vel með upplýsingum um málið á vef landlæknisembættisins þar sem öruggustu upplýsingarnar er að finna og hafa í huga að enn erum við að glíma við óþekkta vá og að þekkingin varðandi hana er á fleygiferð. Túlkanir á takmörkuðum upplýsingum eru því varhugaverðar og mikilvægt að leita alltaf upplýsinga sem byggja á traustum opinberum heimildum.
Í vikunni heimsótti ég apótekið okkar við Hringbraut og blöndunareininguna. Þar fer nú fram gríðarlega metnaðarfullt starf við straumlínulögun þjónustunnar þar sem markmiðið er að auka þjónustu lyfjatækna á deildum spítalans. Þannig færist þeirra mikilvæga starf nær framlínunni og tími annarra, s.s hjúkrunarfræðinga, losnar til annarra mikilvægra verka. Ýmislegt hefur áunnist samhliða þessu, meðal annars að draga úr pappírsnotkun eins og gjarnan fylgir straumlínulögun þjónustu. Það er alltaf ótrúlega endurnærandi að sjá hversu framþróunin hjá okkur er öflug og fólkið okkar framsýnt og metnaðarfullt við að efla og bæta þjónustu við sjúklingana – sama hvar mann ber niður á þessar stóru og flóknu stofnun. Takk ævinlega fyrir það!
Góða helgi!
Páll Matthíasson
Mynd 1: Góður hópur í apótekinu. Helga Sigurðardóttir, Brynja Jónsdóttir, Guðrún Svandís Sigurðardóttir, Tinna Rán Ægisdóttir, Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, Arnþrúður Jónsdóttir, Signý Jóna Hreinsdóttir, Magnea Signý Ásgeirsdóttir, Bogi Brimir Árnason.
Mynd 2: Umbótatafla lyfjaþjónustu.