Kæra samstarfsfólk!
Það líður að hausti og margir að snúa úr sumarleyfum. Ýmis reglubundin starfsemi er komin í það horf sem unnt er miðað við þær takmarkanir sem sóttvarnareglur vegna COVID-19 leyfa. Við leggjum mikla áherslu hér á Landspítala á það að koma starfseminni í sem eðlilegast horf sem fyrst enda verður spítalinn að sinna lögbundum skyldum sínum við landsmenn. Það ríður á að við aðlögum okkur að þeim höftum sem veiran setur okkur, á meðan við vonumst auðvitað til þess að fram komi bóluefni og önnur meðferð sem tryggt getur öryggi. Í næstu viku kallar heilbrigðisráðherra saman samráðsvettvang tengdan COVID-19 viðbrögðum og þar verða meðal annars fulltrúar Landspítala.
Síðustu vikur á Landspítala hafa einkennst af öruggum og fumlausum viðbrögðum starfsmanna við hópsýkingu COVID-19. Það var traustvekjandi að sjá hversu snöfurmannlega var brugðist við á öllum einingum spítalans þrátt fyrir að sumarleyfi væru í hámarki. Ég átti að sjálfsögðu ekki von á neinu öðru en er þakklátur og stoltur af mínu frábæra samstarfsfólki – ykkur öllum!
Við tökumst nú á við nýjar áskoranir vegna faraldursins og höfum í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu aukið afkastagetu okkar. Eins og fyrr í sumar munu starfsmenn okkar nú meðal annars sinna störfum í húsnæði ÍE og með tækjabúnaði sem fyrirtækið leggur verkefninu til. Við, eins og fjölmargir aðrir, fórum strax og heimild fékkst til af stað til að auka getu okkar og pöntuðum tæki og búnað til verksins. Við höfum þegar fengið hluta þess búnaðar til okkar en í nóvember eigum við von á tækjum sem munu margfalda getuna. En það er ekki allt fengið með tækjum og tólum heldur verðum við að hafa á að skipa öflugu starfsfólki sem sinnt getur þessum rannsóknum. Þar hefur okkur reyndar tekist afar vel til og hefur mannafli veirudeildarinnar verið aukinn svo um munar.
Ein af afleiðingum COVID-19 faraldursins á þessu ári hefur verið að Landspítali neyddist til að taka fyrir ferðir starfsmanna á námskeið og ráðstefnur til útlanda. Því miður sér ekki fyrir endann á hindrunum á ferðalögum milli landa og því verða þessi viðmið áfram í gildi innan spítalans um sinn. Þar sem sí- og endurmenntun er mjög mikilvægur þáttur í starfi háskólasjúkrahúss þá vil ég hvetja starfsfólk og stjórnendur til að skoða og nýta sér valkosti svo sem innanlandsráðstefnur og námskeið, ráðstefnur og námskeið gegnum fjarfundi eða aðrar rafrænar leiðir sem eru í boði. Um leið vil ég minna á að þótt ekkert sé ferðalagið þá er í fullu gildi sá möguleiki að fá námskeiðskostnað greiddan sem og að nýta rétt sinn til námsleyfis til að mæta fjarveru frá vinnu til að stunda þessa sí- og endurmenntun. Að svo stöddu er ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á uppsöfnun eða fyrningu réttinda til endurmenntunar og námsleyfa/námsferða enda þar um að ræða kjarasamningsbundin ákvæði.
Loks vil ég hvetja ykkur til að njóta þessara síðustu sumardaga. Fram undan er haustið sem verður varla tíðindalítið fyrir okkur á Landspítala, frekar en fyrri daginn.
Góða helgi!
Páll Matthíasson