Sérfræðilæknir í myndgreiningu, brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
Spennandi tækifæri á Brjóstamiðstöð Landspítala!
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi í brjóstamyndgreiningu sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun sérgreinar og uppbyggingu þverfaglegs teymis Brjóstamiðstöðvar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á landinu og er því leiðandi fyrir þjónustuna á landsvísu.
Fjölskylduvænt starf þar sem vinnufyrirkomulag er dagvinna.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar.
Brjóstamiðstöð er miðpunktur í þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma og einkenni frá brjóstum ásamt því að hafa umsjón með framkvæmd brjóstaskimunar á Íslandi. Mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf og þjónustumiðaða nálgun þar sem starfsemin er í stöðugri þróun. Deildin veitir fjölþætta þjónustu og er í fararbroddi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu. Starfsaðstaða er góð og deildin er mjög vel tækjum búin.
- Almenn sérfræðilæknisstörf á brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
- Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Kennsla og leiðsögn fyrir heilbrigðisstarfsmenn
- Vísindarannsóknir tengdar sérgreininni
- Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
- Íslenskt sérfæðileyfi í myndgreiningu
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Ef íslenska er ekki móðurmál þá er gerð krafa um góða færni og þekkingu í ensku
- Breið reynsla af brjóstamyndgreiningu með áherslu á klínískar rannsóknir og úrlestur skimunarrannsókna. Kostur er reynsla af úrlestri segulómrannsókna á brjóstum, en ekki nauðsynleg
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, læknir