Klínískur fagaðili í sálfræði, félagsráðgjöf, hjúkrun á BUGL
Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) vill ráða til starfa reyndan klínískan fagaðila í félagsráðgjöf, hjúkrun eða sálfræði með viðamikla þekkingu á og reynslu af veitingu geðheilbrigðisþjónustu og/ eða þjónustu við börn og fjölskyldur. Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni, faglegan metnað og áhuga á að vinna þverfaglega með börnum og fjölskyldum sem þarfnast 3. stigs geðheilbrigðisþjónustu. Gert er ráð fyrir aðkomu að þjálfun og handleiðslu starfsfólks og nema, einnig umbótastarfi. Starfið býður upp á fjölbreytta möguleika á klínískri starfsþróun. Unnið er í dagvinnu. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
BUGL samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi þar sem vinnuvikan er 36 klst. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð geðheilbrigðisþjónusta við börn og 18 ára aldri. Unnið er í þverfaglegum teymum að greiningu og meðferð og mikil samvinna er höfð við fagaðila í nærumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á styttingu biðtíma.
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu við greiningu og meðferð
- Klínísk sérfræðingsstörf og ráðgjöf
- Þátttaka í þróun þjónustu
- Kennsla, handleiðsla og fræðsla
- Íslenskt starfsleyfi sem sálfræðingur, félagsráðgjafi eða hjúkrunarfræðingur,
- Sérfræðileyfi sem sálfræðingur, félagsráðgjafi eða hjúkrunarfræðingur er kostur
- Víðtæk reynsla, af greiningar- og meðferðarvinnu og/eða þjónustu við fjölskyldur
- Reynsla af handleiðslu, kennslu á háskólastigi eða vísindavinnu er kostur
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Geta til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og sveigjanleika og takast á við krefjandi verkefni
- Jákvætt hugarfar, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar og menningu sálræns öryggis
- Góð íslenskukunnátta, í töluðu og rituðu máli
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Félagsráðgjafi, Hjúkrunarfræðingur. Sálfræðingur