Gæðastjóri geðþjónustu
Landspítali leitar að öflugum einstaklingi í starf gæðastjóra geðþjónustu Landspítala með áherslu á gæðastarf og rekstur gæðastjórnunarkerfis fyrir sviðið.
Gæðastjóri starfar með öflugu þverfaglegu teymi gæðastjóra og annarra sérfræðinga á gæðadeild Landspítala við þróun og rekstur gæðastjórnunarkerfis spítalans. Gæðastjóri geðsviðs er hluti af sviðskrifstofu og vinnur náið með stjórnendum geðsviðs og öðrum þeim sem vinna að gæðum og umbótum. Áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu við svið Landspítala. Leitað er eftir einstaklingi sem er skipulagður, lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og brennur fyrir gæða- og öryggismenningu.
- Vinnur í samvinnu við stjórnendur sviðs að gæða- og umbótaverkefnum í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala
- Umsjón með úrvinnslu atvika, gæðahandbók sviðs, árangursmælingum, úttektum og öðrum gæðamálum
- Vinnur að uppbyggingu og viðhaldi gæðastjórnunarkerfis á sinni starfseiningu
- Sinnir fræðslu, veitir upplýsingar og kynnir nýjungar er varða gæðamál
- Er þátttakandi í stefnumótun gæðamála á Landspítala
- Stuðlar að stöðugum umbótum og uppbyggingu gæða- og öryggismenningar
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann gæðadeildar og framkvæmdarstjóra sviðs
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda
- Reynsla af störfum á sviði heilbrigðisþjónustu er æskileg
- Þekking á aðferðarfræði gæðastjórnunar
- Reynsla af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla og innleiðingu er æskileg
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Frumkvæði, drifkraftur og geta til að starfa sjálfstætt
- Örugg framkoma og færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni í tjáningu í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisvísindi, gæðastjóri