Hjúkrunarfræðingar Barna- og unglingageðdeild Landspítala
Metnaðarfullir hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á BUGL. Störfin eru laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Bæði er um starf á legudeild og göngudeild að ræða og verkefni taka mið af áhugasviði, færni og fyrri reynslu. Þannig geta störfin hentað bæði nýju og reynslumiklu fagfólki.
Á göngudeild er unnið í dagvinnu en á legudeild er vinnufyrirkomulag vaktavinna, vaktabyrði er hófleg en einnig er möguleiki á að vinna eingöngu dagvinnu.
BUGL samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
- Starfar í þverfaglegum teymum á legu- eða göngudeild
- Tekur þátt í gerð einstaklingsmiðaðra meðferðaráætlana
- Sinnir almennum hjúkrunarstörfum geðþjónustu og meðferðarvinnu
- Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
- Þekking og reynsla af meðferðar- og/ eða ráðgjafarstörfum er kostur
- Framúrskarandi færni í samskiptum og þekking á teymisvinnu
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og geta til að takast á við krefjandi verkefni
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
- Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna