Yfirlæknir jáeindarannsókna og ísótópastofu Landspítala
Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum yfirlækni sem er reiðubúinn að leiða og efla starfsemi á einingum innan myndgreiningar, sem eru jáeindarannsóknir og ísótópar, ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við yfirlækni og deildarstjóra myndgreiningar ásamt forstöðumanni myndgreiningarþjónustu og skv. gildandi skipuriti spítalans. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 15. maí 2024 eða skv. nánara samkomulagi.
Innan myndgreiningarþjónustunnar starfa um 140 manns sem vinna í samhentu teymi reyndra starfsmanna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans.
- Ber faglega og starfsmannaábyrgð á starfsemi jáeindaskanna og ísótópastofu á Landspítala í samráði við yfirlækni og deildarstjóra myndgreiningar og forstöðumann myndgreiningarþjónustu
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Tryggir árangursríkt mennta- og vísindastarf innan starfseiningar
- Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi kjarnans
- Ber læknisfræðilega ábyrgð á starfsemi einingar í samræmi við stefnu Landspítala
- Ber ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð einingar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Íslenskt sérfræðileyfi í myndgreiningu
- Veruleg starfsreynsla sem sérfræðingur í myndgreiningu og staðgóð reynsla af jáeinda- og ísótóparannsóknum
- Þekking á umgjörð geislalyfjaframleiðslu er kostur
- Stjórnunarreynsla af myndgreiningarþjónustu sjúkrahúsa er kostur
- Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi
- Reynsla af vísinda-, kennslu- og þróunarstarfi er kostur
- Færni í stjórnunarhlutverki. þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum.
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér, vistar það, fyllir út og sendir með umsókn.
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, yfirlæknir,