Kæra samstarfsfólk!
I.
Átakshópur heilbrigðisráðuneytis og Landspítala vegna þess vanda sem birtist á bráðamóttöku spítalans hefur byrjað störf. Af hálfu Landspítala sitja þar Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra og Jón Magnús Kristjánsson forstöðumaður bráðalækninga. Fyrir heilbrigðisráðuneytið sitja í hópnum þau Vilborg Hauksdóttir fyrrverandi skrifstofustjóri og Arnar Bergþórsson sérfræðingur. Hópnum til ráðgjafar eru sænskir sérfræðingar í heilbrigðismálum, þeir Johan Permert og Markus Castergren. Nú þegar hafa tekið til starfa þrír vinnuhópar Landspítala sem vinna munu tillögur fyrir átakshópinn. Það er í þessum vel skipuðu teymum sem kjarninn í hinni áríðandi vinnu átakshópsins mun fara fram. Við hjá Landspítala vonumst til að niðurstöðurnar verði jákvæðar fyrir starfsemi okkar enda er umræddur vandi bæði áþreifanlegur og átakanlega erfiður fyrir þá skjólstæðinga okkar sem hann bitnar verst á en það eru þungt haldnir sjúklingar og aldraðir.
II.
Í dag birtum við nýja starfsáætlun og uppfærða stefnu Landspítala. Lykiláherslur í starfsáætlun okkar eru að þessu sinni fimm talsins en voru fjórar áður. Fjárhagur bætist þar við öryggismenningu, þjónustu, mannauð og stöðugar umbætur. Árið 2020 leggjum við áherslu á að rekstur okkur verði sjálfbær í takti við fjárhagsáætlun spítalans. Að auki má nefna viðleitni til að fyrirbyggja helstu flokka atvika í klínískri starfsemi en þeir eru sýkingar, byltur, lyfjaatvik og þrýstingssár. Í þjónustunni viljum stilla sjúklinga betur af inn á rétt þjónustustig, efla dag- og göngudeildir, styrkja hjúkrun og valdefla sjúklinga. Hvað snertir mannauðinn viljum við bæta mönnun og vinnuskipulag, tryggja betur góðan aðbúnað starfsfólks og ýta undir þverfaglega teymisvinnu ásamt því að framfylgja samskiptasáttmálanum í hvívetna. Stöðugar umbætur og straumlínustjórnun eru sömuleiðis mikilvægir þættir í starfseminni sem fyrr og þar vinnum við hörðum höndum að þróun og innleiðingu heildstæðra ferla. Með starfsáætlun Landspítala 2020 setjum við okkur metnaðarfull markmið sem allt starfsfólk vinnur sameiginlega að. Einstök svið, kjarnar, deildir og aðrar starfseiningar eru einnig flest með eigin starfsáætlanir sem smíðaðar eru í takti við starfsáætlun spítalans í heild og unnið verður að innleiðingu þeirra á næstu vikum og mánuðum.
III.
Á miðvikudaginn var voru Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands afhent á Bessastöðum. Þar voru 5 frábær verkefni ungs vísindafólks kynnt. Ánægjulegt er að segja frá því að Halldór Bjarki Ólafsson læknanemi hlaut verðlaunin að þessu sinni og er hann vel að þeim kominn. Verkefni hans ber heitið „Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtíma útkomu eftir skurðaðgerðir“, afar praktískt verkefni sem vonandi mun nýtast til að bæta öryggi þjónustu skurðsjúklinga. Það er gaman að segja frá því að handleiðari Halldórs, Martin Ingi Sigurðsson, yfirlæknir á Landspítala og prófessor í svæfingalækningum, hlaut sjálfur verðlaunin árið 2007. Handleiðari Martins í því verkefni, Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir á erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala, var svo tilnefndur til Nýsköpunarverðlaunanna árið 1997!
(Mynd: Páll Matthíasson, Halldór Bjarki Ólafsson og Martin Ingi Sigurðsson)
IV.
Í vikunni heimsótti ég deild B7. Þar hitti ég Gerði Gröndal yfirlækni og Gerði Betu Jóhannsdóttur deildarstjóra. Það er frábært að sjá það öfluga starf sem fram fer á gigtardeildinni. Nýlega er búið að efla dagdeild gigtlækninga og sameina við dagdeild almennra lyflækninga. Starfið er enn í mótun en sameiningin hefur leitt af sér ýmsar framfarir í þjónustu og verður spennandi að fylgjast áfram með.
(Myndin að ofan: Kristveig Sigurðardóttir útskriftarhjúkrunarfræðingur, Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu, Gerður Beta Jóhannsdóttir, deildarstjóri B7 og Gerður M. Gröndal yfirlæknir.)
V.
Samhæfingarstöð almannavarna var í vikunni virkjuð við áætlanagerð vegna kórónaveirunnar Novel (2019-nCoV). Tilgangurinn er að afla upplýsinga, samræma viðbrögð og tryggja með undirbúningi að allir innviðir séu til staðar ef margt fólk hér á landi skyldi veikjast. Landspítali á fulltrúa í samhæfingarmiðstöðinni ásamt ríkislögreglustjóra, lögreglunni, Neyðarlínunni, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunni, Rauði krossinum, Landsbjörgu, Isavia og Vegagerðinni. Áhersla er lögð á að fylgjast með útbreiðslu veirunnar og hvernig unnið er að vörnum gegn henni, ásamt því miðla nauðsynlegum upplýsingum til bæði viðbragðsaðila og almennings. Landspítali vill að gefnu tilefni benda almenningi á að margvíslegar góðar leiðir eru færar til að forðast smit og fækka smitleiðum til að draga mjög úr líkum á alvarlegum veikindum. Kórónaveiran Novel (2019-nCoV) hagar sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru svipuð og smitleiðir áþekkar. Handhreinsun og hreinlæti kringum augu, nef og munn ásamt öruggri meðhöndlun fæðu eru lykilatriði í þessum efnum. Landspítali hefur nú unnið grafískt veggspjald, samkvæmt leiðbeiningum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO og birt á jafnt vefsvæðum sínum sem samfélagsmiðlum. Ástæða er til að hvetja fólk til að hjálpast að við útbreiðslu á þessum leiðbeiningum.
Kórónaveiran Novel (2019-nCoV): Leiðbeiningar til almennings og ferðamanna
Góða helgi!