Kæra samstarfsfólk!
I. Á erilsömum vinnustað eins og Landspítala, þar sem víða er mikið álag og áreiti úr öllum áttum getur verið erfitt að skilja vinnuna eftir þegar haldið er heim á leið. Það er samt afar áríðandi að reyna eftir fremsta megni að skilja við vinnuna ekki síðar en í anddyri eigin heimilis því fjölskyldulíf og heimili er forsenda þess að við hlöðum batteríin og náum jafnvægi í lífinu. Það getur auðvitað reynst þrautin þyngra þegar mikið hefur gengið á og því höfum við nú leitað í smiðju NHS í Bretlandi þar sem settur var saman gátlisti fyrir heimferð (Going home check-list). Við þekkjum slíka lista fyrir sjúklinga en nú er komið að okkur sjálfum – Gátlista í lok vinnudags. Markmiðið er auka eftirtekt, íhugun og sjálfsstyrkingu starfsfólks með núvitund í lok vinnu. Ég hvet ykkur eindregið til að kynna ykkur þennan lista og væri reyndar ánægjulegt ef fleiri vinnustaðir, sér í lagi í almannaþjónustu, myndu geta nýtt sér hann. Sjálfum þykir mér einna mikilvægast að minna á hversu mikilvæg þjónustan er sem við veitum, hún er ómissandi fyrir samfélagið okkar og ég er afar stoltur af því að tilheyra þeim magnaða hópi sem veitir heilbrigðisþjónustu á Landspítala.
II. Talandi um þennan magnaða vinnustað og þá endalausu uppsprettu af nýsköpun og þróun sem hér á sér stað. Á göngudeild skurðlækninga B3 í Fossvogi hefur heilbrigðis- og upplýsingatæknideild unnið með deildinni spennandi tilraunaverkefni, Rauntímastaðsetning á B3. Á deildina koma sjúklingar til undirbúnings aðgerða sem fara fram einhverju síðar. Ferlið getur verið flókið og sjúklingar þurfa gjarnan að fara til skoðunar og rannsóknar á nokkra staði víða um bygginguna. Hér er um tímamótaverkefni að ræða þar sem nú er mögulegt í fyrsta skipti á Landspítala að staðsetja í rauntíma sjúklinga, starfsfólk og tækjabúnað. Ferlið er að sjúklingar sem koma í innskrift á B3 fá afhent armband með strikamerki og auðkenni sem sendir frá sér staðsetningarmerki. Sjúklingar eru vandlega upplýstir um tilgang merkingarinnar og afdrif upplýsinga. Lausnin gerir starfsfólki á deildinni kleift að vita nákvæmlega hvar sjúklingar eru staðsettir þar sem staðsetning þeirra birtist á skjáborðinu og á rafrænu korti í Heilsugátt. Þetta er tímasparnaður fyrir starfsfólk sem oft þarf að leita að sjúklingum og flýtir fyrir meðferð þeirra. Næstu skref eru m.a. að birta viðvörunarljós á skjáborðinu þegar sjúklingur hefur beðið of lengi á ákveðnum stað sem og birta þær upplýsingar sem staðsetningarkerfið getur gefið okkur á sem skýrastan hátt á spjaldtölvu fyrir framan hverja skoðunarstofu (t.d. nafn læknis sem er inni, hvort hann sé með sjúklingi, hvaða tæki eru inni og hvað er framundan). Eins og önnur þróunarverkefni á spítalanum hugsum við þessa lausn inn í nýjan spítala en gert er ráð fyrir notkun staðsetningalausna í nýjum spítala.
III. Eitt meginhlutverk Landspítala er að þróa menntun og vísindi á heilbrigðissviði. Undanfarin ár hefur sérnám lækna verið eflt svo um munar og ein nýjasta rósin í hnappagat sérnámsins er viðurkenning á tveggja ára námi í öldrunarlækningum sem undirsérgrein við almennar lyflækningar og viðbótarsérgrein við almennar lyflækningar. Mikilvægi þróunar á þessu sviði verður ekki ofmetið, einkum í ljósi þess að öldruðu fólki fjölgar hratt hjá okkur og afar mikilvægt að unnt sé að veita þessum mikilvæga hópi góða þjónustu um allt heilbrigðiskerfið. Öldrunarlækningar og öldrunarþjónusta skipa hlutfallslega stóran sess í starfsemi spítalans og við erum því vel í stakk búin að bjóða metnaðarfullt sérnám í greininni.
IV. Í vikunni heimsótti ég í „gemba“ bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Frábært var að sjá að störfum það öfluga fagfólk sem þar leiðir vinnuna en öflugur mannauður var það sem stóð upp úr í huga stjórnenda A2 þegar spurt var um styrkleika starfseminnar. Ég fræddist um þau kerfi sem notuð eru til að tryggja öryggi og skilvirkni; meðferðarferla algengra vandamála, aga við útskriftir og notkun útskriftadagsetninga, mikilvægi þess að þróa áfram 7 daga spítala og það hvernig „streyma“ stofugangar eru mikilvægur þáttur í starfi deildarinnar.
V. Undanfarið hefur verið talsverð umræða um flutning klínískra brjóstaskoðana frá Krabbameinsfélagi Íslands til Landspítala. Við tókum við þessari þjónustu frá Krabbameinsfélaginu þegar ljóst var að henni yrði ekki áfram sinnt þar. Við höfum því undanfarið byggt upp þjónustuna hér á Landspítala en vissulega hefur það tekið tíma enda hefur ekki verið hugað að uppbyggingu þessar þekkingar á landinu fyrr en nú. Við horfum vongóð til framtíðar þessarar þjónustu hjá okkur og forgangsröðum sjúklingum sem þjónustuna þurfa helst, þar til við náum fullu þjónustustigi
Góða helgi!
Páll Matthíasson
Mynd af starfsfólki bráðalyflækningadeildar A2 með forstjóra: Katrín Víðisdóttir, María Vigdís Sverrisdóttir, Kristín Edda Kristjánsdóttir, Svanhildur Sigurjónsdóttir, Þorgerður Þráinsdóttir, Ástrós Björnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Þór Pétursson, Judith Ann Penrod, Elín Bára Birkisdóttir, Margrét Björg Árnadóttir, Guðrún Jónasdóttir og Páll Matthíasson.