Starf í vöruhúsi Landspítala
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf í vöruhúsi Landspítala. Leitað er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vöruhús Landspítala hýsir heilbrigðis- og rekstrarvörur fyrir spítalann og aðrar heilbrigðisstofnanir. Framundan eru spennandi tímar þar sem vöruhúsið mun flytja í stærra húsnæði á næstu mánuðum með tilheyrandi tækninýjungum og breytingum. Hlutverk starfsfólks í vöruhúsi er móttaka á vörum og afgreiðsla pantana til viðskiptavina ásamt þrifum og öðrum tilfallandi verkefnum sem tilheyra í vöruhúsi. Viðkomandi mun heyra undir teymisstjóra vöruhúss sem er ábyrgur fyrir því að starfsemi vöruhúss gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.
Vöruhús Landspítala er hluti af Aðfangaþjónustu sem skiptist í fimm teymi; vöruhús, þvottahús, flutningaþjónustu á Hringbraut, flutningaþjónustu í Fossvogi og deildaþjónustu. Bæði núverandi og nýtt vöruhús er staðsett á Tunguhálsi og þar vinna um 20 einstaklingar. Unnið er í vöruhúsi alla virka daga frá 07:00-18:00 á 7 tíma vöktum.
- Móttaka á vörum frá birgjum
- Tiltekt pantana til viðskiptavina
- Þrif og önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af vinnu í vöruhúsi kostur
- Bílpróf
- Lyftarapróf kostur
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Góðir samskiptahæfileikar
- Íslenskumælandi eða enskumælandi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: þjónustustörf, lagerstörf, móttaka, afgreiðsla, þrif
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5