Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á barna- og unglingageðdeild
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi óskast til starfa á dag- og legudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítala. Um framtíðarstarf er að ræða. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið á þrískiptum vöktum, dag-, kvöld- og næturvöktum.
Deildin skiptist í dag- og legudeild sem samanstendur af 10 dagdeildarplássum og 12 bráðaplássum. Hlutverk deildarinnar er að sinna börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa á tímabundinni sjúkrahúsinnlögn að halda vegna geðræns vanda barns.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Við bjóðum markvissa, einstaklingshæfða starfsaðlögun í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni. Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.
- Starfar í þverfaglegu teymi við umönnun og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda og fjölskyldum þeirra
- Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
- Stuðlar að góðum starfsanda
- Menntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi
- Reynsla af meðferðar-, umönnunar- eða uppeldisstörfum
- Áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn
- Framúrskarandi færni í samskiptum
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
- Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
- Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, umönnun, Sérhæfður starfsmaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5