Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Sjúkraliðar óskast til starfa á legudeild geðrofssjúkdóma Landspítala við Hringbraut. Við sækjumst eftir metnaðarfullum sjúkraliðum sem hafa áhuga á að starfa með fólki með geðrænar áskoranir, bæði í bráðaveikindum og endurhæfingu. Áhersla er lögð á notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 15. september 2025 eða eftir samkomulagi.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virkni, fræðslu, lyfjameðferð og hvatningu og stuðning við athafnir daglegs lífs. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Spennandi vettvangur fyrir sjúkraliða sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun.
Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning í starfi. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun, umönnun og stuðningur við meðferð einstaklinga
- Virk þátttaka í þverfaglegu starfi á deild
- Er leiðandi og styðjandi við annað starfsfólk á deild varðandi líkamlega umönnun, byltuvarnir og sýkingarvarnir
- Stuðla að öryggi sjúklinga og starfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðsviðs
- Hafa umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
- Stuðla að góðum starfsanda
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Reynsla af líkamlegri umönnun
- Áhugi á geðhjúkrun
- Reynsla af geðhjúkrun kostur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna vel undir álagi
- Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, hjúkrun
Tungumálakunnátta: íslenska 4/5