Transteymið var heiðrað á ársfundi Landspítala í maí síðastliðnum í flokknum Framþróun.
Teymið veitir kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu fyrir þau sem þurfa á að halda og hafa náð 18 ára aldri.
Úr tilnefningu: „Þetta teymi er búið að takast á við áskorun eftir áskorun og vera á tánum við að finna lausnir. Auk þess að finna tíma til að sinna símenntun. Þjónustan er orðin ein af flottustu transteymum sem að finnst á alþjóðavísu.“
Í myndbandinu er rætt við Sigríði Jónu Bjarnadóttur, teymisstjóra og hjúkrunarfræðing í transteymi fullorðinna.
Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum Vinnustaðurinn okkar þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.
Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.
Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.
Ásta Fanney er talin einn af fremstu gjörningalistamönnum landsins. Hún hefur sýnt og flutt verk sín á söfnum og hátíðum víða um heim og verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026 en tvíæringurinn er talinn einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu.
Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.