Sondueftirlit Vökudeildar hlaut heiðrun í flokknum Öryggi á ársfundi Landspítala í vor.
Sondueftirlitið er hjúkrunarstýrð þjónusta fyrir börn sem útskrifast af Vökudeild og þurfa áfram stuðning við næringarinntekt, stundum súrefnisgjöf eða annað sérhæft eftirlit. Með þessari þjónustu er mögulegt að útskrifa börn fyrr heim af spítala með viðeigandi stuðningi.
Úr tilnefningu: „Eftirlit með börnum sem útskrifast af Vökudeild hefur orðið til þess að börnin komast mun fyrr heim en áður var í faðm fjölskyldunnar sem er mjög mikilvægt fyrir vellíðan allra fjölskyldumeðlima. Einnig er það mikilvægt fyrir betri nýtingu á dýrmætum sjúkrahúsplássum á gjörgæsludeild nýbura.“
Í myndbandinu er rætt við Rakel Björgu Jónsdóttur og Elísabetu Halldórsdóttur, hjúkrunarfræðinga í sondueftirlitinu.
Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum Vinnustaðurinn okkar þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.
Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.
Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.
Ásta Fanney er talin einn af fremstu gjörningalistamönnum landsins. Hún hefur sýnt og flutt verk sín á söfnum og hátíðum víða um heim og verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026 en tvíæringurinn er talinn einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu.
Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.